Grand Theft Auto 3 Á föstudaginn 26. okt byrjaði ég daginn á því að fá mér morgunmat, fara í skóla o.f.l. Klukkan hálf þrjú tek ég strætó niður í kringlu, chilla aðeins, og fer síðan u.þ.b kl:16 í BT. Ég labba hægt inn, úr fjarðlæg sé ég aðeins í eitthvað kunnulegt hulstur. Já, gat það verið GRAND THEFT AUTO 3. Ég gríp í leikinn, borga okurverð ( 6.999 ), síðan geng ég úr BT. Tek strætó heim, ríf leikinn úr hulstrinu ( í góðum félagsskap ), kveiki á minni guðlofuðu ps2 , set leikinn í.

Ókei, sætt lítið myndband kemur og síðan er ég byrjaður í leiknum, jesús kræstur!!!! Gta 1 og tvÖ eru ekki einu sinni verðugir fyrirrenar ( þó ágætir hafi verið ), gta3 er algjör schnilld!
Grafíkin er stórgóð, geimpleijið er frábært, gervigreindin er einnig nokkuð góð. Einn af hápunktum leiksins er að berja heimilislaust fólk ( fulla róna ) og gamlar kellingar, ég get bara ekki líst því hvernig það er að myrða þetta fólk með baseball kylfu. Arsenalið í leiknum er mjög svæsið og skemmtilegt, þess má einnig geta að ég er aðeins kominn með baseball bat, litla sæta skammbyssu, uzi, handsrpengjur, sniper, flamethrower og síðan einhverja vélbyssu. Endilega látið mig vita hvar og hvernig maður nær molotov cocktail. Bílarnir eru flestir skemmtilegir og gengin einnig skemmtileg, en stærðin á frickin leiknum er hjúmangös, ég er aðeins kominn með portland og s-eitthvað og jesúmídía, þetta er stórkostlegt. Semsagt grófur, stór, góður, skemmtilegur, ótrúlegur, rosalegur, frábær, fyndinn, svæsinn og mjög notty leikur. Allir þurfa að fá sér þennan!