Loksins er kominn nýr MGS2 trailer. Hideo Kojima og Konami ákváðu að frumsýna nýjan trailer og nýtt demó á Tókýó leikjasýningunni. Ég er nýbúinn að skoða hann, og hann er hreint út sagt dásamlegur!

Kunnugar persónur eins og Snake, Mae Ling, Revolver og Otacon koma fram ásamt öðrum nýjum og lítt þekktum persónum. Einnig er sýnd einhvers konar bátahöfn, þó að það líkist líka olíuborpalli. Ný tegund af hermönnum er kynnt, og þyrlur og hinn nýji Metal Gear fá smá skot.

Að lokum má nefna að Big Boss virðist birtast í trailernum…

Trailerinn er 46 MB að stærð og 4 og hálf mínúta að lengd. Hægt er að nálgast hann <a href="http://gamespot.com/gamespot/stories/news/0,10870,2817627,00.html">hér á GameSpot</a> auk þess að lesa upplýsingar um trailerinn og demóið.

Ef tengill virkar ekki:
http://gamespot.com/gamespot/stories/news/0,10870,2817627,00.html

Royal Fool
“<i>You've been Fooled</i>”