Crazy Taxi 2 - Dreamcast - Umfjöllun Ef það er eitthvað sem SEGA gerir vel þá er það framhald leikja þeirra, sem dæmi má nefna Virtua Fighter og Virtua Fighter 2, House of the Dead og House of the Dead 2 (vinsælasti byssuspilakassaleikur (langt orð) í heimi). SEGA nær þvílíkum byltingu á milli leikja bæði grafíklega og eykur spilanagildið til muna. Núna er Crazy Taxi 2 kominn á markaðinn alls staðar í heiminum. En heitasta spurningin er hvort Crazy Taxi 2 sé betri en fyrirrennari sinn?

Framsetning:
Auðveldur menu, frábært intró og þessi góða tilfinning að vera sestur aftur í sæti Crazy Taxi sem er einn af mínum uppáhaldsleikjum á DC ever.

Grafík:
Búið er að bæta hversu langt áfram þú sérð, miklu meiri umferð og minna af pop-ups og hægagangi. Samt sem áður er engin rosaleg framför í þróun grafíkar í leiknum. Greinilegt er þó að mikil vinna hefur farið í arkitektúr borgarinnar og er það aðdáunarvert.

Hljóð og tónlist:
Röddin fer að verða þreytandi, persónur leiksins eru illa leiknar en allt reddast þetta með því að lækka effects niður í 0 og setja BGM í botn þar sem Offspring og Methods of Mayhem fara á kostum með glænýjum lögum.

Gameplay:
Nýji hopp möguleikinn er algjör snilld og gerir það að verkum að borgirnar sem maður keyrir um eru allt öðruvísi upp byggðar heldur en í CT1 þar núna er meira um að maður hoppi upp á þak og skjóti sér á milli skýjakljúfra til að koma farþegum á leiðarenda. Einnig er frábært að geta tekið upp allt að 4 farþega. Mesta ánægju hafði ég þó af Crazy Pyramid þar sem þú tekst á við þrautir og geta sumar hverjar reynst vera mjög erfiðar, en ef maður gefur sér tíma þá heppnast þetta alltaf eins og í hverjum öðrum leik. CT2 má eiga það að þótt að hann bjóði ekki upp á fjölspilun er algjör snilld að vera margir saman og keppa sín á milli um hver er fljótastur að aka í gegnum þrautirnar.

Ending:
Um leið og þú hefur klárað leikinn í sitt hvorri borginni þá er náttúrulega fullt eftir með því að klára Crazy Pyramid. En að honum loknum þá er lítið eftir af leiknum heldur en að grípa í hann öðru hverju til að sýna félögunum afhverju Dreamcast rúlar yfir Playstation2 því að það er auðvitað gameplay-ið sem skiptir máli.

Lokaálit: Skemmtilegri en CT1, stuttur, hefði mátt bæta fleiri þrautum inn í þetta, vantar fleiri lög en þegar öllu er á botninn hvolft þá er þetta hin besta skemmtun. 8/10