Jæja þá er Grand Theft Auto: San Andreas kominn út eftir langa bið og eftirvæntingu. Já ég keypti leikinn í dag (gær) 29 okt í BT. Hann kostaði 4.800 og eitthvað. Ég spurði starfsmann í BT afhverju hann er svona ódýr, þá sagði hann að hann gæti alveg hækkað í verði á morgun, það gæti alveg verið sagði hann.

Jæja ég kaupi leikinn frúin sem afgreiðir mig setur hann í gulan BT poka og ég gekk af stað úr BT með bros á vör enda var ég búinn að bíða lengi eftir að gripurinn kæmi út.

Ég hljóp að strætó skýlinu og í þeirri sekúndu kom strætóinn sem fer með mig heim. Ég kem heim og sting leiknum í Playstation 2 tölvuna. Og horfi á myndbandið í byrjun.

Carl Johnson kemur frá Liberty City og er núna kominn í Los Santos þar sem fjöldskyldan hans býr, bróðir vinir og svoleiðis. Hann frétti að mamma hans hafi verið myrt og drífur sig í Los Santos.

En ég ætlaði reyndar ekki að segja frá söguþráðinum en ég ætlaði aðeins að segja frá hvernig leikurinn sjálfur er.

Grafíkin er mjög góð, bara næstum eins og í Grand Theft Auto: Vice City bara betri. Þegar maður er að berjast þá er move-ið voða töff og ólíkt öðrum Grand Theft Auto leikjum.

Þegar maður er að ræna bíl þá kýlir hann í manninn sem er við stýrið og hendur honum svo út sem er töff. Þegar maður keyrir farartæki þá fær maður alltaf skill í hlutunum.

Eins og þegar maður keyrir mótorhjól og keyrir kannski í svona 5 mínútur þá fær maður skill. Því fleyri skill sem maður fær því betri verður maður að keyra farartækið.

Svo þegar maður er kominn aðeins lengra í leiknum þá getur maður farið í Gym og þar bætir maður muscle eins og maður segir á ensku eða vöðvar.

Ok, það er 4 um að ræða sem maður getur bætt sig í það er Respect, muscle, fat, stamina og svo sex eitthvað það er svona hve mikið gaurinn er sexy.

Maður fær plús í respect á því að gera mission.
Maður fær muscle fyrir að fara í gym og æfa sig.
Maður fitnar á því að borða.
Stamina er svona þol og þegar maður hleypur þá minnkar fat og þá eykur maður þol. Þá getur maður sprintað lengur.
Svo sex dæmið það er bara hvað þú færð flotta vöðva og hvernig fötin eru sexy og svona.

Þetta er mjög góður leikur að mínu mati, en auðvitað á ég eftir að spila hann lengur ég er ekki kominn einu sinni 1 af 100 örugglega af leiknum.

En ég mæli eindregið með þessum leik og allir ættu að fá sér hann í næstu tölvuleikja verslun.