Næstu helgi (27-28) verður sannkölluð veisla fyrir xbox áhugamanninn í Expert. Það verður dúndurtilboð á xbox, fyrstu 25 sem kaupa fá hana á botn verði með 3 leikjum!

Það verður haldinn keppni í Project Gotham Racing 2, í fyrstu verðlaun er tölvan sjálf, Xbox. Svo verða glaðningar fyrir næstu sæti.

Skráning í keppnina er í Expert á laugardeginum um 11 leitið (morguninn). Það kostar ekkert í hana, og þið þurfið ekki að koma með ykkar eigin tölvur þannig að það er bara um að gera að mæta og hafa gaman af þessu!

Það verður einnig reynt að skapa ennþá meiri stemmingu með því að hafa grillmat á boðstólunum, ís verður gefinn og fleira góðmeti!

Tilboð á Xbox og xbox hlutum verða, þannig ef að þú ætlar að fá þér Xbox leikjatölvu er um að gera að spara pening og fá sér eina næstu helgi!

Vonandi mæta sem flestir og skemmta sér!

Kveðja!

P.s. Fyrir þá sem vita ekki hvar Expert er að finna, þá er það rétt fyrir neðan IKEA, Bónus og rúmfatalagerinn í Holtagörðum! :)