Maður sem segist vinna hjá Rockstar Games sendi síðunni www.gta4zone.tk póst með upplýsingum um GTA 4. Hannn vildi ekki segja til nafns af ótta við að vera rekinn. Hér á eftir kemur sumt af því sem hann sagði. Veit ekki hvort eitthvað af þessu er rétt eða maðurinn er að ljúga…..

Leikurinn Gerist í San Andreas (SA), California. Sú borg byggist af þrem stórum eyjum ásamt tveim minni. Persónan sem maður leikur er óþekkti gaurinn úr GTA 3 en núna er hann kominn með nafn. Chris Dela Questia. Edward Norton á að tala fyrir hann.

Þeir sem veita þér vinnu: Donald Love, 8-ball, Sandro Restifa (Kólumbískur eiturlyfjabarón), Inspector Rainwater (Lögga í SA, missionin hjá honum verða meira lögguleg), Chang wang (Triad foringi), Phil Cassidy, Col. Cortez (býr nú í SA eftir að hafa ferið frá VC \'86), Tommy Vercetti (býr á vel vörðu hóteli í SA ásamt Vercetti genginu), Dave Garret (vinur Chris), Pastor Richards (klikkaði gaurinn sem var alltaf í útvarpinu í VC þessi sem vildi byggja styttu sem hægt væri að fljúga á útí geim, er með sértrúarsöfnuð).

Farartæki: Kuruma, Smiley van, Formula 1 bíll, Dodo með alvöru vængi, PCJ 800, Sabre, Löggu freeway með hliðarkerru, her patriot (Hummer), A family van, Jet ski, FBI sedans (ef þú færð sex stjörnur í wanted meter kemur herþyrla í eftirförina)og sjúkraþyrla.

Vopn: hnújárn, hafnabolta kylfa, skammbyssa, chrome haglari, Mp5, handsprengjur, molotov eldsprengjur, Táragas, Ak-47, M4, Sniper Rifle, RPG og M60 vélbyssa.

Vona að þetta hafi svalað einhverju af forvitni ykkar um leikinn GTA 4 sem kemur í næstkomandi desembermánuði endilega svariði og segið hvað þið mynduð vilja hafa í næsta GTA leik….