Ástæðan fyrir því að ég sendi inn þessa grein er sú að ég er orðinn þreyttur á þessum látum í ykkur, ÖLLUM! Plús það það er aldrei hlustað á mig á korkunum.
Í dag getum við skipt okkur í hópa. Sony hópur (PlayStation, blanda GTA leiki mjög mikið inn í + PS2 er besta tölvan i heimi). Nintendo hópur (GameCube, blanda Zelda mjög mikið inn í + besta tölva í heimi). Microsoft hópurinn (X-Box, blanda einhverjum leikjum sem ég þekki ekki, + besta tölva í heimi) (ekki eru samt allir svona!)
Sumir eru ekkert að átta sig á þessu skítakasti sem gengur hér á milli og halda að þetta sé allt saklaus gagnrýni, en nú mun ég renna inn nokkrum classic línum sem minnir ykkur á hvernig þetta er í raun og veru.

“Skemmtilegar” setningar og svör úr greinum:
“Undsere, farðu nú að halda kjafti viðbjóðslega fanboy freakið þitt.”
“AZTEX þú ert mesta fífl sem til hefur verið í veröldini og þú átt ekki skilið að lifa.”

Ok… sem betur fer er ekki mikið af þessu…. þannig séð

“Skemmtilegar” setningar og svör frá korkum:
“HALTU FUCKING KJAFTI!!!!”
“Þú ert bara pervert sem varst bannaður”

Okay, flestir hugsa með sér “Þetta var nú bara djók” eða eitthvað svona, en er þetta ekki orðið aðeins of persónulegt!!!! Ég veit að sumir þarna vita ekki skít um tölvur og koma með fullyrðingar sem meika ekki sens, þrátt fyrir það er óþarfi að klikkast og segja að viðkomandi aðili sé vangefið fífl. Staðin fyrr það svörum við bara á almennum nótum.
Svo er einnig þetta þetta stríð milli leikjatölvanna, skilaboð til þeirra sem halda að þeirra tölva sé best: Þetta fer eftir smekk!!! Já við skulum tala um hver er best/flottust/skemmtilegust/whateverust tölvan, en ekki fullyrða það að okkar sé best og annað sé bara crap!
Have fun hugarar, sérstaklega þið nýju! Sýnið tillitsemi, sleppið “þursa” talinu og vera opinn fyrir nýjungum/leikjatölvum.

:) <– You can't so no with that face!