Sanity effect í Eternal Darkness Sanity's Reqium ATH! FYRIR ÞÁ SEM EKKI HAFA SPILAÐ ETERNAL DARKNESS ER ÞETTA SPOILER. MÆLI MEÐ ÞVÍ AÐ EF ÞIÐ HAFIÐ EKKI SPILAÐ UPP Í 7. KAFLA AÐ ÞÁ HÆTTIÐ ÞIÐ NÚNA!






Hérna ætla ég að segja frá öllum effectunum sem að ég hef séð, þeir gætu verið fleiri en ég held að þetta séu flestir

Flugurnar: Þessi effect virkar þannig að þú sérð einhverja svarta klessu birtast á skjánum. Þar sem að þú ert ekki að fylgjast með “flugunni” þá finnst þér þetta vera svört klessa, svo sérðu að hún hreyfir sig… tekur þú eftir að þetta er fluga, en svo þegar að ´hún fer út fyrir skjáinn þá koma svona 20 mismunandi stórar flugur inn á skjáinn… og þá kemur “THIS CAN'T BE HAPPENING!”


Mute: Þessi effect og reyndar þeggar leikurinn lækkar á sjónvarpinu koma oftast fyrir hjá mér. Held að ég þurfi ekki að lýsa þessu nákvæmalega, það bara, detta öll hljóð út. Og þá kemur “THIS CAN'T BE HAPPENING”


Hljóðið lækkar: Datt ekkert betra í hug, en allavega þá virkar þetta þannig að in á skjáinn þinn kemur “VOLUME IIIIIIIIIII”
og svo fækkar I'unum sífellt þangað til að ekkert heyrist. Og enn og aftur kemur “THIS CAN'T BE HAPPENING”


Þú missir líkamsparta: Þessi lýsir sér þannig, að stuttu eftir að þú kemur inn í herbergi poppar hausinn af þér, þegar það gerist geturðu annaðhvort labbað áfram eða tekið hausinn upp. Ef að þú tekur hausinn upp, þá öskrar kallinn/konan sem þú leikur “THIS CAN'T BE HAPPENING.” En ef þú hinsvegar heldur áfram missir þú hendurnar, og svo eftir að þú missir hendurnar fer búkurinn af, s.s það sem að eftir er, eru lappirnar. og þá kemur öskrið “THIS CAN'T BE HAPPENING!”


Reset: Þessi skemmtilegi effect lýsir sér þannig að það kemur eins og það slökkni á sjónvarpinu og inn á skjáinn kemur ljóðið eftir Poe. Verð nú að viðurkenna að ég féll algörlega fyrir þessum, hélt að rafmagnið hefði farið af og svo hefði því það verið sett á aftur… creeeeeepy… og svo þegar ljóðið er hálfnað kemur “THIS CAN'T BE HAPPENING!”


herbergi full af Zombies: Mjög skemmtilegt að lenda í þessu, þú labbar inn í herbergi og þá taka svona 7 zombies á móti þér, þú drepur kannski svona 3-4 og þá heyrist “THIS CAN'T BE HAPPENING!”


Þú skýtur sjálfan þig: Þennann effect hef ég reyndar bara séð hjá Maximillian Roivas þegar að hann hleður byssuna sína, en það getur verið að þetta komi fyrir hjá öðrum. Þessi effect er samt þannig að meðan að þú hleður byssuna hleypur skot úr henni og “splatt” beint í hausinn, kallinn dettur niður og svo “THIS CAN'T BE HAPPENING”


Þegar herbergið snýr öfugt: Þessi effect er MJÖG flottur. Hann er þannig að þú labbar inn í herbergi og þá er allt öfugt, s.s. þú labbar í loftinu, og svo lekur blóð niður ehh… upp veggina, svo þegar þú ferð að hurðinni og ætlar út heyrist “THIS CAN'T BE HAPPENING!”


Svo er einn effect sem ég hef reyndar bara séð hjá Alex í mansioninu, það er ein stytta rétt hjá master's bedroom sem að horfir alltaf á mann, reyndar hættir hún því þegar þú ert með fullt sanity en… samt, er þetta mjög creepy.

———————-Spoiler endar——————————-

Þetta eru allavega allir þeir effectar sem ég hef séð/man eftir að hafa séð. Ef þeir eru fleiri… þá eru þeir fleiri.