Mig vantar letter of reference - er að vinna í að fá það, kreditkort - sem ég sótti um og fæ á föstudag (til að borga umsóknargjöldin) og að geta sent eitt skjal með (síðan er niðri en skjalið er tilbúið)…

… og þá er ég búin með mína fyrstu umsókn í leiklistarskóla úti í London.

Er að sækja um LAMDA, Rose Bruford og Guildhall.

Ég fæ hroll af því að vera svona nálægt því að byrja á því sem mig hefur dreymt um síðan ég var krakki.
-Tinna