Leiklistardeild kvikmyndaskólans er að útskrifa fyrsta bekkinn í vor og er í sífelldri þróun sem og hin nýju sérsvið skólans. Kvikmyndaskólinn er búinn að vera í mikilli uppbyggingu rétt eins og bransinn allur á undanförnum árum. Svo er þetta líka líflegur og fjölskyldulegur skóli sem tekur vel á móti gæludýrinu þínu ef enginn í bekknum er með ofnæmi og þú færð ekki pössun :-P

Ég hef allavega notið þess að ganga þarna í gegn og hlakka mikið til að fylgjast með þróun og uppbyggingu þarna áfram eftir útskriftina í vor.

Bara að deila þessu með ykkur,
góða skemmtun.