Sæl,

Nú eru að fara að hefjast sýningar á leikverkinu okkar Grænu Engin Hinum Megin sem sýnt er í Austurbæ. Sýningardagar eru 15, 16, 17, 18 og 19 apríl og eru þær allar kl. 20:00. Miðaverð er 2000kr. Handritið er frumsamið eftir leikstjórana okkar Guðjón Þorstein Pálmarsson og Snæbjörn Ragnarsson og er byggt á bókinni “The Loved One” e. Evelyn Waugh. Einnig er tónlistin frumsamin líka eftir þá pilta, Snæbjörn er til að mynda í Ljótu hálfvitunum.

Grænu Engin Hinum Megin er sýning sem vert er að fara á, sneysafull af húmor og skemmtilegri tónlist.

Miðasala er í síma 698-6986 og 6603873.