Leikarinn Heath Ledger fannst látinn í íbúð sinni á Manhattan í New York í dag. Ledger var 28 ára gamall og var árið 2005 tilnefndur til óskarsverðlauna fyrir leik sinn í kvikmyndinni Brokeback Mountain.

Kona sem starfaði við þrif hjá leikaranum kom að leikaranum og var hann úrskurðaður látinn eftir að björgunarmenn komu á staðinn. Fréttastofan AP hefur eftir lögreglu að andlát Ledger tengist hugsanlega lyfjanotkun.

Heath Ledger kynntist eiginkonu sinni, leikkonunni Michelle Williams árið 2005 við tökur á myndinni Brokeback Mountain. Þau eignuðust dótturina Matildu, en skildu á síðasta ári.

Ledger lék m.a. annars í kvikmyndunum Monster's Ball og A Knights Tale, hann hafði tekið að sér hlutverk í kvikmyndinni The Dark Knight, sem er framhald kvikmyndarinnar Batman Begins.

Tekið af http://www.mbl.is

R.I.P
Byrði betri