Hæhæ, ég er ný á þessu áhugamáli og reyndar bara nú á Huga yfir höfuð :P Datt í hug að kynni mig bara svona fyrir kurteisissakir.
Hreindís Ylva heiti ég, átján ára menntaskólanemi, aðstoðarleikstjóri/sýningarstjóri og kennari í Barna- og unglingaleikhúsinu og leikkona hjá Leikfélagi Reykjavíkur eins og stendur. Finnst frekar fyndið að kynna mig sem “leikkonu” en ég er að leika núna í Jesus Christ Superstar á stóra sviðinu í Borgarleikhúsinu.
Hlakka til að komast inn í þetta Huga-dót, þetta virkar allavega ágætis spjallvetvangur :P

Kær kveðja,
Hreindís