Jæja, þá var ég í minni fyrstu stadistareynslu í dag og það var nú bara fjör!
Spaugstofan bað um 3 og ég og önnur stelpa og einn strákur skokkuðum upp í Perlu, fórum í búninga (ég leit út eins og kelling!) og upp.
Ég veit ekki alveg hvað atriðið átti að snúast um en ef þið horfið á Spaugstofuna þá er eitthvað atriði í Perlunni þar sem þeir eru að toga borðin af því snúningurinn virkar ekki eða eitthvað. Og ég sit þarna á bakvið í kerlingarlegum fötum.

Svo mér datt í hug hvort einhver hefur verið í því að vera stadisti? Deila því kannski með okkur? :D
-Tinna