Hæ.

Ég er leiklistarnemi á brautinni Fræði og Framkvæmd, og mér vantar sjálfboðaliða til þess að taka þátt í gjörning sem ég verð með eftir nokkrar vikur. (Nánar tiltekið á Laugardaginn 25.Nóv).

Ég þarf að fá fólk í heimsókn til þess að leika vini mína, (nána vini, ónána, skiptir engu máli), og einhverja hæfileikaríka stúlku til þess að leika kærustu mína.

Engin greiðsla er í boði, en það verða einhverjar veitingar, nammi og jafnvel bjór sem þið megið fá ykkur ef þið mætið.

Sendið mér bara skilaboð og ræðið við mig. :-)