Hver kannast ekki við barnaplötuna sívinsælu eftir Dr. Gunna? Hver man ekki eftir “Prumpufólkinu”?

Ég ætlaði bara að láta ykkur vita, kæru hugarar, sem eru margir hverjir á þeim aldri sem hlustaði á Abbabbabb í æsku, að nú er Dr. Gunni að ljúka við að skrifa söngleik eftir plötunni!! OMG!

Söngleikurinn verður frumsýndur í janúar eða febrúar eða eitthvað (minnir mig) og er leikhópurinn vægast sagt öflugur :D. Ekki ætla ég að uppljóstra að svo stöddu hverjir skipa hann (vegna þess að ég man það ekki…) en þið verðið bara að fylgjast spennt með!

Abbabbæ!