Triviu fjögur (sem var sett inn 18. júlí) er nú formlega lokið. 4 tóku þátt. Mikið djöfull er það ógeðslega slöpp þátttaka, en hún skrifast líklega að einhverju leiti á mig. Mér fannst svo gaman að semja spurningar að ég ákvað að gera ógeðslega erfiðar spurningar. Spurningar sem voða fáir gátu svarað og afleiðingarnar voru sem fyrr segir, léleg þátttaka.

Þátttakendur voru:
1.dala (með 9 stig)
2.rowdy (með 5 stig)
3.-4.selten (með 4 stig)
3.-4.pala (með 4 stig)

Sigurvegari Trviu IV er því dala

*Klapp*

Hér kemur svo Trivian og svörin:

1. Í hvaða söngleik koma persónurnar Claude, Sheila og Berger fyrir og hvaða stríð geisar í honum? (2) Hárinu, Vietnam-stríðið
2. Þann 27. febrúar var leikritið Equus frumsýnt á West End og beittu framleiðendurnir einkar sniðugri aðferð til þess að ná athygli fjölmiðla. Hvaða aðferð var þetta? (tvö atriði) (2) Daniel Radcliffe var fenginn til að leika aðalhlutverkið fyrstu vikurnar og hann kom nakinn fram.
3. Hvaða landsþekkti leikari vann nýlega þrjú Grímuverðlaun og í hvaða flokkum? (2) Benedikt Erlingsson. Leikari ársins í aðalhlutverki, leikskáld ársins og leikstjóri ársins.
4. Tilvitnun:
”Með sannleik, með trú,
með því hvernig hann grét?
Með brunninni brú,
Sem hún eftir sig lét?”
Úr hvaða söngleik er þessi tilvitnun og hvaða ár var hann síðast settur upp á Íslandi? (2) Rent. 1999. Ókei ég valdi reyndar fáááránlega óþekkta tilvitnun þar sem einn karlleikarinn syngur í laginu “Sígræn ást” Hahh…
5. Ef leikari stendur „uppsviðs vinstri“ á sviði, hvort er hann aftast til hægri, aftast til vinstri, fremst til hægri eða fremst til vinstri (séð frá áhorfandanum)? (1) Aftast til hægri.
6. Hvaða barnasýningu mun Gunnar Helgason leikstýra á næsta leikári og hvað heitir aðalpersónan? (2) Skilaboðaskjóðunni, Putti litli
7. Fylltu inn í: Leiksýningin Eilíf hamingja er fyrsta íslenska millistjórnendadramað. (1)
8. Hvað heitir eina einleikjahátíðin á Íslandi (haldin um sumartímann á Ísafirði og í kring) og hvað heitir forsprakki hennar (fornafn og millinafn)? (2) Act Alone. Elfar Logi.
9. Hvað er lénið að vefsíðu Þjóðleikhússins? En Borgarleikhússins? (2) leikhusid.is og borgarleikhus.is
10. Nefnið tvo af leikurunum á þessari mynd (2) Ólafur Egill Egilsson, Ólafur Darri Ólafsson, Ingvar E. Sigurðsson, Björn Hlynur Haraldsson og Edda Arnljótsdóttir.