Vil vekja athygli á glænýrri íslenskri þriggja þátta vefseríu. Fyrsti þáttur var að lenda á netinu, hinir tveir koma á næstu tveimur vikum. Hún heitir Ævintýri á Einkamál og er rugl fyndin. 

Eins og segir á Youtube rás Fenrir Films, mannanna á bak við þættina: 

"Þættirnir fjalla um hinn hryggbrotna öfganörda Jóhann, sem leitar á náðir Einkamál til að leysa kvennamál sín. Súrir vinir, erfiðar aðstæður og hröð atburðarrás ráða ríkjum í þessari trufluðu seríu sem á engan sinn líka í íslenskri þáttagerð.

Fylgist vel með á næstu vikum, þegar meira efni frá Fenrir Films ratar á netið, alltaf á föstudögum."

Þetta eru innan við tíu mínútna þættir, og allir mjög fyndnir og nördalegir. 

Endilega njótið og deilið. 

Fyrsti þáttur er hérna 
http://www.youtube.com/watch?v=Oz7TSdppgyg

Kv. Guðni