Góðan daginn,

Það gæti verið að ég fari að uppfæra vélabúnaðinn hjá mér upp í Sony HRV-V1e, sem er eflaust barn síns tíma fyrir marga en maður verður víst eitthvað að horfa í peninginn líka.

Það sem ég er að velta fyrir mér, er hversu öflug tölvan mín þarf að vera til að capture-a þetta sómasamlega og klippa það? (í sony Vegas). Ég hef reynt að finna upplýsingar um þetta á google en hlýt að vera eitthvað tölvuólæs þessa dagana því ég hef ekkert fundið sem ég hef haft gagn af.

Bestu kveðjur,

Sverri