Já sælir, ég bara því miður hafði ekki hugmynd um hvar ég ætti að setja grein um Byssur, en meginmálið tengist í rauninni stuttmynd eða kvikmynd.

Mig langar svoldið að fikta við stuttklippur og svoleiðis eins og snillingurinn Freddie Wong gerir.
www.youtube.com/user/freddiew

Nema mér langar ekkert í einhverjar ljótar dótabyssur sem eru minni en lófinn á mér.

Ég skoðaði Army.is og allt sem mér datt í hug, en hvergi get ég fundið Byssu Replicur.

Ég fann síðu á netinu hérna: http://kiei.biz/replica_guns

En ég hef áður lent í basli með að kaupa af vefsíðum sem eru ekki Þekktar eins og t.d. Amazon og eBay.

Eru einhverjar búðir hér í nágrenni sem selja svona Replicur?

Replica virkar eins og alvöru byssa, er með hylki, hleðslu og gikk og allt eins og það á að vera nema þó þú myndir stinga byssuskoti í hylkið myndi ekkert gerast. Enda ætlast til þess að sound effectar séu settir inn á vegum Kvikmynda Edit Tools eins og t.d. Sony Vegas.

Enn ef ekki séu til hér á Íslandi, vitiði um síðu sem þið actually treystið?

Stjórnendur mega færa þennan þráð ef þetta sé óviðeigandi á þessum tengli.