Ég á í miklum vanda með myndatökuvélina mína (Canon XM 1). Málið er að ég á einungis FireWire tengi fyrir hana. Sem er í sjálfu sér gott mál, en svo er annað. PC talvan mín tekur ekki við FireWire heldur einungis USB. Getið þið nefnt einn eða tvo staði þar sem er hægt að kaupa USB tengi (með litlu tengi í myndatökuvélina og stórt á endan).

Annað vandamál felst í hljóð myndatökuvélarinnar, en vill ég auka það. Hvar eru góðir míkrafónir fáanlegir (Sennheiser heyri ég að séu bestir)? Annars þarf ég einnig á hljóðdeyfi að halda fyrir rokið og vindinn sem er búin að vera hérna undanfarið.

Getið þið bent mér á staði þar sem þessar vörur eru fáanlegar á ódýr verði, ef nauðsýnlegt dýru verði líka. (Helst benda mér á góðu hlutina, sama með verðið þá, en gott að benda á ódyru einnig).

Takk fyrirfram!