Sælir kvikmyndagerðarhugarar

Þannig er mál með vexti að ég er alltaf að reyna að æfa mig að klippa myndbönd og hef klippt einhvern slatta. Er nú ekkert sérstaklega góður en kann eitthvað. Núna er ég bara strand vegna þess að ég á ekkert efni til að klippa og hef ekki tök á að taka neitt upp. Þannig að ég var að spá hvort einhver hérna ætti óklippt stuttmyndefni eða eitthvað álíka sem að hann væri til í að senda mér og leyfa mér að spreyta mig á. Ég er ekki að tala um að klippa mynd fyrir einhvern, nema náttúrulega að einhver óski eftir því. Heldur er ég að hugsa þetta þannig að ef þið eigið efni sem að þið viljið leyfa mér að spreyta mig á bara til að æfa mig. T.d. dæmis ef þið eruð að klippa mynd eða eruð búin að því en eigið samt ennþá óklippta efnið þá væri geðveikt ef að þið væruð til í að lána mér það til að æfa mig. Ég ætla mér ekki að gera neitt með þetta efni heldur einungis ætlað til að æfa mig þannig að þið þurfið ekki að hafa neinar áhyggjur af því að ég fari að eigna mér ykkar efni eða gera eitthvað með það sem þið viljið ekki

Vona að þið skiljið hvað ég á við og vonast eftir góðum viðbrögðum

Kveðja Arnar sem á ekkert hráefni til að klippa
What if this ain't the end?