Sæl kvikmyndaáhugafólk,

Veit einhver hér um einhverja góða niðurhals staði á netinu sem bjóða upp á eitthvað af ókeypis videoklippum til niðurhals. Ég hef eingöngu áhuga á efni sem er ekki höfundarréttar varið né með neinum öðrum takmörkunum og skilyrðum varðandi notkun. Einnig þarf það helst að vera í sem allra bestum gæðum.

Ég hef fundið og skoðað staði eins og www.digitaljuice.com en þó svo að þau dæmi sem ég hef skoðað þar séu flott og í fínum gæðum þá virðist ekki vera hægt að fá neitt þar nema fyrir pening. Sama virðist vera með ýmsa aðra svipaða staði.

Með fyrirfram þökk fyrir öll svör og ábendingar.