Sælir kvikmyndagerðaráhugamenn og konur.
Ég er búin að leita eins og óð kona undanfarið að einhverjum námskeiðum sem tengjast kvikmyndagerð. Er búin að googla og googla og einhverntímann sendi ég meil á kvikmyndaskóla Íslands, en ég fæ engin svör. Annað hvort eru allir hættir að halda námskeið eða þau eru haldin með mikilli leynd svo það er ekki séns að finna þau.
Vitið þið um einhvern námskeið sem stendur til að halda. Það skiptir ekki máli hvort þau snúa að myndatökunni, klippingunni, leikstjórninni eða hvað, mig langar bara að fá einhverja innsýn inn í fagið.
Vona að þið vitið um eitthvað.
Kveðja
MissMarilyn