Ég er með ansi stórann avi fæl(6.5GB). Vil koma þessu á dvd disk. Hef prófað 3 ókeypis forrit af netinu til að breyta í Divx en hljóðið passar ekki við myndina í eina forritinu sem virkar þó eitthvað af þessum þremur. Getur einhver bent mér á forrit sem gerir þetta? Ætla ekki að eyða miklu fé í þetta. Er málið að setja þetta á Divx til að minnka eða eru önnur formöt betri t.d. mpeg?

Er algjör byrjandi en mér liggur á því ég þarf að sýna myndina í skólanum sem fyrst.

Bætt við 19. september 2006 - 22:38
Setti upp trial af Encore og verð að segja að ég er mjög ánægður með útkomuna. Kærar þakkir til Pottloks og annara sem gáfu góð ráð