CSP - Samurai Yuhi Samurai Yuhi er fyrsta stuttmyndin okkar formlega undir nafninu Culture Shock Productions. Við erum þrír sem samanstöndum að CSP en aðeins tveir okkar komu nálægt Samurai Yuhi.

Hún fjallar um Samurai nokkurn sem sest hefur í helgan stein en þarf fyrst að gera upp við drauga fortíðar sem ásækja hann. Umgjörðinn er nokkurskonar óður til gömlu svart/hvítu samurai myndanna og um leið smá spoof. Hún var tekin upp í gríni og góðu flippi en eftirvinnslan gerði hana dramatískari en við gerðum ráð fyrir.

Öll gagnrýni væri vel þegin og vonandi njótiði vel. Minnum á heimasíðuna okkar sem er enn í vinnslu og er ýtarleg umsögn um gerð myndarinnar væntanleg.

Kv.Culture Shock Productions.