ég á GR-D30E vél frá JVC og notast við klippiforritið Adobe Premiere Pro v7.0.

ég er búinn að klippa nokkur myndskeið en vantar bara að Exporta þau og þannig er að ég næ ekki að Exporta myndirnar aftur á Cameruna. ég hef prufað að stilla vélina á record og play en hvorugt virkar. Auk þess hef ég reynt að stilla forritið á ýmsan hátt en ekkert virkar.

Það kemur ekkert Error message og vélin sýnir engin viðbrögð en samt virkar ekki að exporta á vélina. Vinur minn á líka allveg eins vél og notar sama forrit og þetta virkar ekki heldur hjá honum, þannig að þetta er ekki galli hjá mér

Veit einhver hvað á að gera?