Biðst afsökunar á því að þetta tengist kannski ekki kvikmyndagerð beint.
Þannig er mál með vexti að ég var að taka við formennsku videosviðs í skólanum. Ég er núna að vinna að skráningu tækjakosts okkar en er ekki alveg viss hvernig ég á að standa að því.

Er einhver hér sem hefur skráð svona og langar að deila með mér hvernig hann stóð að því. Ég er með nokkuð skýra hugmynd um það hvernig ég ætla að standa að þessu, en smá hjálp væri vel þegin.

Með fyrirfram þökk.