Ég er að fara að gera langa kvikmynd (40 mín+) og ég þarf klippiforrit til þess að klippa hana. Ég er með iMovie en það verður allt miklu erfiðara þegar það verða komnar margar klippur í það. Vitið þið um eitthvað klippiforrit fyrir Mac sem er hægt að taka stutta búta úr myndinni og vinna þá sér og fara svo aftur í aðalmyndina? Er þetta hægt í Final Cut Pro? Mig langar rosalega mikið í það en ég ætla ekki að eyða miklum peningi.