Ég og tveir vinir mínir erum í kvikmyndagerðafélagi sem nefnist SpaugMyndir. Við gerum aðallega teiknimyndir, þó að við höfum reynt að gera fullt af leiknum stuttmyndum, enda kom nafnið, SPAUGmyndir, útrfrá einhverri leikinni mynd sem aldrei komst af stað. Fyrst vorum við bara með 12 ára gamla Panasonic video vél fyrir stuttmyndirnar og PowerPoint fyrir teiknimyndirnar. Þá varð ný persóna til, Karate Kötturinn. Reyndar var persónan stolin frá Microsoft Office. En nú erum við komnir með Macromedia Flash MX 2004 og digital upptökuvél. Nýjasta mynd Spaugmynda heitir Glaða Kindin og er teiknimynd. Söguþráðurinn er ekkert rosalegur, um glaða kind sem hoppar og trallar um allt, með refinn á hælum sér með dramatíska tónlist, og líka smá danslög á milli auk Matrix-bardagaatriðis. Mér fannst glaða kindin ekkert spes, en Ofurkindin, sem bjargar þeirri glöðu, það er fínn karakter. Ég er að spá í að gera sér þætti með Ofurkindinni. Og náttúrulega er ég búinn að senda þetta þetta á huga.is, bara á eftir að fást samþykkt.
Fyrir áhugasama um Glöðu Kinda-myndina þá er hún hér á slóðinni
http://gi.is/thingasel/Doddi/Glada_Kindin.wmv