Jæja, nú sýnist mér að þetta áhugamál sé loksins að lifna við. Nú hefur komið sú hugmynd að notendur á þessu áhugamáli fari að gera kvikmynd í sameiningu, og hefur þessi hugmynd fengið góðar undirtektir.

Ég er sjálfur mjög mikill áhugamaður um kvikmyndir og kvikmyndagerð en hef því miður ekki mikla reynslu. En mig þyrstir mjög mikið í að komast inn í þetta fag.
Ég hef verið að skoða þetta áhugamál í svolítin tíma og litið á nokkrar af þessum stuttmyndum verð ég að segja að hér er fullt af fólki með góðar hugmyndir(en ekki alltof frumlegar) og með viljan fyrir hendi.

Ég legg því til að notendur fari að koma með frumlegar hugmyndir að stuttmynd eða mynd í fullri lengd. Hér gætu menn skipts á hugmyndum og hjálpað hvor öðrum. Og þegar uppi er staðið ættum við að enda uppi með þokkalegt handrit. Ég tel að við getum hér myndað öflugt lið við gerð kvikmynda.


Með von um góðar undirtekti