Þegar ég gekk í gegnum Kringluna einn daginn varð mér litið
á sportbíl sem var verið að sýna á miðjum gangveginum. Ég
fór mikið að pæla í því hvort ekki væri hægt að nota þetta í
kvikmynd. Ég fór að semja út frá þeirri hugmynd að þjófar sem
ákveðið höfðu að ræna demantaverlsun í kringlunni myndu
verða leiddir í gildru vegna þess að einn í hópnum hefði lekið
upplýsingum í lögregluna. Þjófarnir væru króaðir af en á
miðjum gangi kringlunnar væri Sportbíll til sýnis. Þjófarnir
myndu brjóta sig inn í bílinn og keyra af stað eftir gangi
kringlunnar, brjótandi allt og síðan enda með grand final þar
sem þeir skjótast út um glerið á kringlunni og keyra í burtu.
Svo út frá þessari hugmynd settist ég niður og byrjaði að
brainstorma og skrifa upphafið á handriti.