Hæhæ, ég er að spá í að fara að búa til bíómynd, bara svona að gamni mínu… Ekkert eitthvað SVAKA!! Ég hef mjög litla reynslu af svona hlutum en er alveg brillíant í að klippa myndir og effecta þær og svoleiðis… en ég er í smá vandræðum með um hvað myndin á að vera… Það eru nokkrir flokkar sem að koma til greina.. Þeir eru:
Hrylling/Gaman

Rómantík/gaman

Spenna/Gaman

Gaman

Ég er komin með alveg fullt af hugmyndum um handrit… þau fljúga alveg í kollinum á mér..! Ég vildi semsagt spyrja um nokkra hluti… Kostar eitthvað mikið að gera svona mynd bara í gamni, kostar eitthvað að fá að taka t.d. í kringlunni eða einhversstaðar annarsstaðar og hvað er léttast og skemmtilegst að gera af þessum flokkum sem að ég var að telja upp?<br><br>Frá mér…….Kisulora89!