Hinir árlegu Stuttmyndadagar verða haldnir í Kringlubíói þann 28. maí næstkomandi. Keppt er um bestu stuttmyndina og verða veitt þrenn verðlaun fyrir bestu myndirnar, 100.000 kr. fyrir fyrsta sætið, 75.000 kr. fyrir annað sætið og 50.000 kr. fyrir þriðja sætið. Að auki verða veitt áhorfendaverðlaun og Sjónvarpið mun sýna þær myndir sem hljóta áðurnefnd verðlaun. Þá verður leikstjóra þeirrar myndar sem hlýtur fyrsta sætið boðið á Kvikmyndahátíðina í Cannes að ári þar sem myndin tekur þátt í hinu svokallaða Short Film Corner.

Ásgrímur Sverrisson, leikstjóri og handritshöfundur (og fyrrum ritstjóri Lands & sona), hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri hátíðarinnar, sem haldin er af Kvikmyndafélagi Íslands. Stuttmyndadagar hafa verið haldnir allt frá 1991 og þar hafa fjölmargir kvikmyndagerðarmenn, sem síðar hafa getið sér gott orð, stigið sín fyrstu spor. Má þar m.a. nefna Árna Óla Ásgeirsson, Maríu Sólrúnu Sigurðardóttur, Rúnar Rúnarsson, Ragnar Bragason, Róbert Douglas, Grím Hákonarson, Reyni Lyngdal og Gunnar B. Guðmundsson.
Í fyrra var það myndin Hux eftir Arnar Már Brynjarsson sem hlaut fyrstu verðlaun. Í öðru sæti var Monsieur Hyde eftir Veru Sölvadóttir og Post it eftir Hlyn Pálmason varð í þriðja sæti. Áhorfendaverðlaunin fékk Uniform Sierra eftir Sigríði Soffíu Níelsdóttur.

Frestur til að skila inn myndum rennur út þann 11. maí en nánari upplýsingar er hægt að nálgast á heimasíðu hátíðarinnar; stuttmyndadagar.is.
Sleepless In Reykjavik