NUFF í Noregi! Hæ öllsömul!

Mig langaði bara að benda áhugasömum á að stuttmyndahátíð ungs fólks á Norðurlöndum, NUFF, er með keppni í gangi þetta árið í samstarfi við dvoted.net.

Það er mjög einfalt að taka þátt, gert alfarið á netinu, og tekur enga stund. Þið þurfið bara að setja myndina ykkar inn á dvoted og senda svo póst á dvoted[at]dvoted.net og þá eruð þið með!

Vinningarnir eru glæsilegir en fyrstu verðlaun er ferð til Noregs á NUFF, allt borgað (flug, gisting, uppihald) í tíu daga 1. til 10. júní 2007.

En þið þurfið að flýta ykkur því umsóknarfresturinn rennur út á SUNNUDAGINN 13. MAÍ!!!

Nánari upplýsingar fást hér: http://www.dvoted.net/index.php?option=com_content&task=view&id=864&Itemid=121