Þetta er stuttmynd sem ég og vinir mínir tóku upp í skólanum í fyrra, hún átti bara vera 5 min en síðan bættust alltaf ný og ný atriði við og hún endaði í 18 min:D

Þó þetta sé ekki fyrst myndin okkar þá erum við samt frekar miklir amatörar þannig ekki drulla yfir okkur útaf hljóði, lýsingu eða myndatöku(ok, þið megið drulla aðeins yfir okkur útaf myndatöku, hún var nokkuð slæm).

Við notuðumst bara venjulega stafræna video upptökuvél(sony held ég), og hljóð var tekið upp á kameruna líka. Skólinn okkar var aðal upptökustaðurinn en síðan fórum við aðeins í 11-11 til að breyta aðeins til;D

Við vorum með handrit í byrjun en leyfðum okkur að breyta því á tökustað og enduðum á því að þetta var ekkert líkt handritinu okkar:/ en það var samt ekkert voða slæmt því að handritið var ekkert til að hrópa húrra fyrir heldur:)

En að lokum vil ég bara óska ykkur góðs áhorfs og vonandi líkar ykkur myndin.


smellið hér til að sjá myndina
mjá ég er hundur!