ég er að vinna í hinu húsinu núna með nokkurm rugludöllum..og er semsagt að vinna að því koma þessari netsjónvarpstöð í gang (sem gengur miljón sinnum hægara en ég bjóst við sjálfur) og er að taka upp fyrir 2 hópa af fötluðum krökkum…og taka ljósmyndir af starfinu í húsinu og eithvað…any way

ég gerði myndband í fyrra með fötluðu krökkunum sem hét hressi öryrkinn og í ár ætlum við að toppa það, Við töluðum við gaurinn sem sér um tónlistina í eve leiknum og hann er að vinna að laginu með 2 strákum úr hópnum ,
einhver rappari sem ég veit ekkert um samdi textann og Jack and jones lánaði okkur fáránlega svöl hvít jakkaföt bleika skyrtu og hvítt bindi og hvíta támjóa skó líka,
Exodus lánaði okkur svaka hip hop galla og fullt af bling-i og eðal vagnar lánuðu okkur “flottustu limmu á landinu”…

við erum komnir með leyfi til að taka upp á gauk á stöng….en gaukur á stöng er gaukur á stöng og ekki mikið pimp í því svo að ég er að bíða eftir svari frá pravda og rex…helst vil ég vera á rex sjálfur…fáránlega svöl innréttingin á rex og svona…any way

við hringdum í basicly allar stelpur sem við komumst í símanúmer hjá og vonum að sem flestar mæta bara…sjálfsagt verða þær ekkert allar eithvað flottar en þar sem við getum ekki eytt krónu í þetta sjálfir þá sættum við okkur við það bara að sjálfsögðu…

í textanum kemur fyrir setning sem er einhvern veginn svona: ekki bögga hann blabla eða fazmo stútar þér. og ætlum við að reyna fá fazmo gaurana til að vera í skoti í þeirri setningu…bara for the joke…vona að þeir taki vel í það bara…enda fer ekki milli mála að allt er gert í gríni

ég var svo búinn að fá pro ljósmyndara til að koma og taka myndir af okkur fyrir netið…

pimpið er semsagt strákur í hjólastól sem kemur í limmuni á staðinn og stelpurnar taka vel á móti honum…

þar sem ég hlusta ekki á rapp og hef aldrei þurft að pæla í hvað er pimp eða bling eða hvað annað þá datt mér í hug að spurja ykkur um hugmyndir..props eða eithvað sem gæti gert þetta enn flottara

hugmyndir ?
Sleepless In Reykjavik