Ég er búinn að segja að ef mér verði sendar nógu margar íslenskar stuttmyndir, þá muni ég gefa út Cult 3. Núna er búið að senda mér tvær myndir, brúðumynd sem er 4 mínútur og teiknimynd sem er 2 mínútur, sem eru nógu góðar til að vera á spólunni. Það er ágætis byrjun, haldið bara áfram að senda.

Myndirnar mega alveg hafa birst áður annars staðar, svo lengi sem sendandinn á höfundarétt að myndunum sem hann sendir. Þetta eiga helst að vera myndir sem eru skemmtilegar og/eða hafa húmor, eða eru cult/b-myndir á einhvern hátt.

Hafið bara samband gegnum rokkvi@lagmenning.is