Frítt á æfingar allra félaga 7.-21. október

Öll körfuboltafélög í landinu bjóða börnum og unglingum frítt á körfuboltaæfingar dagana 7. - 21. október. Hér er kærkomið tækifæri fyrir krakka að mæta á körfuboltaæfingu hjá félaginu í sínu hverfi og prófa þessa skemmtilegu íþrótt.

Upplýsingar um körfuboltafélög landsins og hvaða aldursflokka þau bjóða uppá er að finna á kki.is eða í hjá KKÍ í síma 514 4100. Ennfremur er hægt að fá upplýsingar um æfingatíma hjá félaginu í þínu hverfi. Körfubolti er fyrir alla.