Lakers spiluðu svakalega skemmtilegan bolta í gær á móti NJ. Gáfu inn á Shaq og hann lagðist með hendina ofan í körfuna. Þarna sýndi Lakers mikla breidd og liðsvinnu. Þetta kallar maður sko skemmtilegan körfubolta. Ekki var þó Lakers eingöngu gott inni í teignum heldur voru þeir að sýna fleiri vopn eins og 3ja stiga skot. Lakers eru sko óútreiknanlegir, maður vissi aldrei hvað kæmi næst.