Fyrrum leikmaður Memphis Grizzlies, Bryant Reeves, eða “Big Country” eins og hann er nú kallaður hefur lagt skóna á hilluna. Liðið tilkynnti það á blaðamannafundi síðastliðinn þriðjudag. Ástæðan er sú að Reeves hefur átt við þrálát meiðsl í baki að stríða og hefur ekkert leikið á þessu tímabili. Reeves var fyrsti leikmaðurinn sem Grizzlies völdu í nýliðavalinu árið 1995, 6. í því vali sem var fyrsta nýliðaval sem félagið tók þátt í, en liðið var stofnð 1995 og þá sem Vancouver Grizzlies. Á sex ára ferli sínum með Grizzlies skoraði hann að meðaltali 12.5 stig og tók 6.5 fráköst. Reeves er leikjahæsti leikmaður Grizzlies frá upphafi með 395 leiki.