Mínir menn í Golden State og LA Clippers eiga ´nú í harðri baráttu um síðasta sætið í úrslitakeppni Vesturdeildarinnar. Í nótt rúllaði GS yfir Dallas sem hvíldi reyndar marga leikmenn á meðan að Clippers unnu Suns óvænt á útivelli, en Suns sendu sterkast liðið sitt í leikinn.

Warriors eru með 50,6 % vinningshlutfall og leika í nótt á útivelli gegn Portland sem hefur að engu að keppa á meðan að Clippers með 49,4 % sigurhlutfall taka á móti New Orleans sem á ekki möguleika á að komast í úrslitakeppnina. Eini möguleiki Clippers er að vinna og að Warriors tapi á sama tíma í Portland. En hverjir haldiði að taki þetta?