Keflavík tekur á móti erkifjendum sínum Njarðvík í kvöld í sláturhúsinu við Sunnubraut kl.19:15!

Keflvíkingar þurfa á sigri að halda til að eignast heimavallarrétt og ná sér í stig.
Njarðvík situr í 2. með 30stig, Kr í 1. með 30 en Keflavík situr í 5. með 20 stig.

Keflvíkingar tefla þar fram nýjum bandarískum leikmanni í kvöld sem þeir gera miklar væntingar til. Tony Harris heitir hann og er bakvörður.
Gaman að sjá hvernig kappinn mun standa sig:)

Liðin mætust reyndar í fyrri umferð IEX. deildinni 21. des. en þann leik sigraði Njarðvík 86-72.

Leikurinn er Iceland Express-leikur umferðarinnar og verður létt getraun í gangi. Allir sem koma á leikinn og svara henni rétt eiga möguleika á að vinna ferð fyrir tvo hvert sem er með Iceland Express. Skattar eru innifaldnir.


Sjáumst í kvöld!!

Áfram Njarðvík!!!