Já Riley er slæmur í hnénu og mjöðmunum og ætlar að taka sér smá hlé um óákveðinn tíma. Þessi tímasetning er mjög skrítin að mínu mati því það er eins og hann er að yfirgefa liðið þegar það þarfnast hans sem mest en ef hann er sár kvalinn þá skil ég þetta(en hann talaði um þetta líka fyrir tímabilið).
Wade er smá meiddur eins og er og Shaq er búinn að vera frá í 5 vikur en er reiknað með að hann verður tilbúinn fyrir lakers leikinn 15.jan(típískt). Walker og Posey hafa verið setir í bann hjá liðinu fyrir að vera ekki í nógu góðu formi. Þetta virðist ekki vera lið sem er líklegt til þess að verja titilinn(sem mér fannst Dallas eiginlega gefa þeim í fyrra).
Miami eru í 9.sæti austurstrandar meiginn með árangurinn 13-17 en þeir ná örugglega í úrslittakeppnina þegar Shaq og Wade verða komnir í gang.
Vertu þú sjálfur og gerðu það sem þú villt