Já, greyið Dennis Scott virðist vera alveg búinn að vera, hann komst ekki að hjá Washington í fyrra (og þá er mikið sagt) og núna eru Lakers búnir að losa sig við hann og líka nýliðann Paul Shirley. Ég skil ekki hvers vegna þeir voru að fá hann til sín í fyrsta lagi, þeir eru með margar skyttur og maður sem að komst ekki að hjá Wizards í fyrra getur varla mikið. En hvað ætli hafi eiginlega komið fyrir Scott? Það eru sex ár síðan hann var byrjunarliðsmaður í liði sem komst í úrslit og svo á hann NBA metin í þriggja stiga körfum bæði í einum leik og og yfir heilt tímabil, núna kemst hann ekki að hjá liði annað árið í röð.<br><br>jogi - smarter than the average bea
jogi - smarter than the average bear