ég fylgist ekkert rosalega með körfubolta, en ég man þegar það var geðveikt körfuboltaæði var hérna á íslandi og allir voru að safna körfuboltamyndum og ég man að það var flottast að eiga myndir með Michael Jordan, hann var flottastur hann var á toppnum og hætti á toppnum, svo byrjaði hann aftur einhverntímann og mig minnir að honum hafi ekkert gengið neitt rosalega vel, svo núna byrjar hann AFTUR með liði sem hann á, mér finnst það fáranlegt, ég veit að hann var að byrja aftur því honum finnst svo gaman að spila körfubolta, en mér finnst að hann hefði bara átt að hætta á toppnum og fara að þjálfa lið frekar, en ekki að vera með eitthvað svona comeback.