Já eins og fyrirsögnin gefur til kynna þá hefur Phil Jackson skrifað undir 3ja ára samning við Lakers. Jackson var í 5 ár hjá Lakers og vann titilinn 3svar sinnum en fór frá félaginu frá ári.

hérna er stutt grein um þetta á mbl.is;

Phil Jackson hefur á nýjan leik tekið við Los Angeles Lakers í NBA-körfuboltanum eftir árs fjarveru. Jackson skrifaði undir þriggja ára samning við liðið sem stóð ekki undir væntingum á tímabilinu og komst ekki í úrslitakeppnina en það hafði aðeins gerst einu sinni síðan 1976.