Philadelphia 76ers unnu Milwaukee Bucks 108-91 og sigruðu því einvígið 4-3 og mæta Lakers í úrslitum. Allen Iverson var stigahæstur að vanda og skoraði 44 stig og átti 7 stoðsendingar og tók 6 fráköst, Dikembe Mutombo skoraði 23 og tók 19 fráköst. Ray Allen skoraði 26 stig og Glenn Robinson 24 fyrir Bucks.