Jæja nú líður að einvíginu milli sterkustu liðanna í deildinni. Lakers og Spurs, ætli stjörnurnar í Lakers taki turnana eða öfugt? San Antonio er búið að vinna Lakers í báðum leikjum þeirra í vetur og verður spennandi að fylgjast með þessu. Persónulega held ég að þetta verði mest spennandi leikjahrinan af þeim öllum. Komið með ykkar skoðanir á þessu og spá um úrslit. Mín spá er að Lakers sigri San Antonio 4-3… Ég er Spurs maður en held samt að það þurfi mjög mikið til að einhver stoppi Shaq.

Kveðja,
Óli
www.massadur.blogspot.com