Jæja, hvernig fannst fólki leikirnir? Ég sá bara seinni hálfleik karla, þannig að ég get aðeins dæmt um það.
Mér fannst íslenska liðið dáldið andlaust og lítil stemmning en Kanarnir skemmtu sér og áhorfendum konunglega. Hefði viljað sjá meiri tilþrif.
En almennt finnst mér að konurnar ættu að fá að troða líka.

Jæja smá pæling um þetta allt saman, hvað fannst ykkur?